Á laugardaginn næsta 27.6 er ætlunin að merkja nokkrar gönguleiðir inn á Höfðabrekkuafrétti. Þetta er verkefni sem ferðafélagið tók að sér í fyrra fyrir Mýrdalshrepp og er það liður í að fjármagna endurbyggingu Deildarárskóla. Það er búið að merkja hluta af þesssum leiðum og er ætlunin að klára þá vinnu næsta laugardag.
Ef þú hefur áhuga á að vera með í þessu skemmtilega verkefni endilega sendu okkur þá tölvupóst á myrdalur@gmail.com eða skilaboð á facebook.